JÓNAS ER FYRIRMYND!

   Bloggheimar eru í djúpum skít. Töluverð hjörð hefur í rauninni yfirtekið umræðuna á neikvæðum nótum, stóryrt og fordómafull. En það er ekki leiðum að líkjast, eða hvað? Jónas Kristjánsson fyrrum ritstjóri DV hefur ausið úr skálum sínum á www.jonas.is um árabil. Sérvitur, fordómafullur, stórorður og dómharður. Nánast allir sem honum líkar ekki við eru bófar og bófaflokkar.

  Hann skrifar yfirleitt þrjá níu línu pistla á bloggsíðu sína á dag, sem eru hlaðnir fordæmingum en fátækir af úrbótahugmyndum. Og er ekki til viðræðu við lesendur, þetta er boðskapur haleljúa. Af einhverjum ástæðum hefur þjóðin ekki almennt tekið mark á því sem Jónas hefur fært fram um áratugi, en það er talsvert. Þegar hann er nú loksins fullorðinn leggst hann í stríð við alla.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband