Sunnudagur, 19. apríl 2015
KALLINN Á KASSANUM Á ÚTVARPI SÖGU
Kallinn á kassanum var predikari á Lækjartorgi. Eftirmaður hans er Pétur Gunnlaugsson á Útvarpi Sögu. Hann er stjórnarformaður og skilja má að hann sé líka sambýlismaður útvarpsstjórans, sem er eigandi stöðvarinnar. Nefndur Pétur er helsti þáttastjórnandi Sögu og lætur ekki deigan síga. Hann er skeleggur pólitíkus og veður elginn óspart um einkapólitík sína, svo að innhringjendur eiga iðulega ef ekki oftast fótum sínum fjör að launa, þegar Pétur er í stuði.
Þar á móti eru aðrir innhringjendur, sem hafa flykkt sér um Sögudæmið og mæra það í bak og fyrir og eru auðvitað alltaf sammála Pétri.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.