GAGNBYLTING HAFIN Í BORGARTÚNI

   Í mínum huga hefur það verið og er æðsta boðorð umferðarskipulags að það sé einfalt og auðskilið. Að þeir sem eru í umferðinni séu ekki sífellt að rekast á eitthvað óvænt, sem þarf að bregðast við skyndilega eða í tíma og ótíma.

   En þetta viðhorf á greinilega erfitt uppdráttar eða því er hafnað hjá ríkinu en þó sérstaklega sveitarfélögunum. Allt á Íslandi sem talið hefur verið óteljandi hverfur í rykmekki af fjölbreytni umferðarskipulagins.

   Þar ægir öllu saman í frágangi vega og gatna, merkinga, hraðahindrana, gangbrauta og bara svo framvegis. Þetta er skipulegt kaos, sem útilokað er að nokkur geti verið stoltur af, eftir á að hyggja.

   Síðustu misseri hafa stjórnendur höfuðborgarinnar brugðið á leik við að stokka upp vissar götur í almennt óljósum tilgangi, alla vega hvað varðar hag borgaranna og þeirra sem þurfa að rækja erindi sín.

    Hofsvallagatan og Snorrabrautin eru í uppnámi, hvor á sinn hátt, Borgartúnið sem gata er eiginlega að lenda í umferðaröngviti. Hringtorgið sem nú er verið að sneyða niður boðar vonandi upphaf gagnbyltingar!

  

 


BJARNI BEN OG DÁNA BLÓMIÐ

   Það eru miklir fossar fallnir síðan ég var í forystusveit Sjálfstæðisfokksins á árunum 1962-1972. Ritstjóri blaða í Kópavogi og á Akureyri, í bæjarstjórn Kópavogs, varaformaður Sambands ungra Sjálfstæðismanna, við hlið Ellerts B. Schram. Ég kvaddi flokkinn.

   Mér líkaði ekki foringjahefðin í flokknum, en réði mig jafnframt til starfa þar sem mér þótti ekki við hæfi að vera í stjórnmálaflokki. Ég hef aldrei kosið annan flokk, en stundum skilað auðu. Bjarni Ben skorar á mig að kjósa ekki flokkinn hans núna. Með því að svíkja mig!

   Fyrir þingkosningar í fyrra sendi hann mér og okkur eldri borgurum í kjördæminu okkar bréf með loforðum um að afturkalla skerðingar tekna okkar. Ég hef minnt hann á þessi loforð og stöðu þeirra, en kýs að svara mér engu um áminninguna né efni eigin bréfs.

   Ég bý í 10 hæða húsi, á 9. hæð. Sölumennska í húsinu er bönnuð. Í morgun þegar ég fór á stjá og opnaði fram á gang, duttu af húninum að utan kort og dáin rós. Samfylkingin! 


ENN HUNDRUÐ MILLJÓNA Í LANDKYNNINGU

   Á meðan landið fyllist af erlendum ferðamönnum er enn varið hundruðum milljóna króna í landkynningu, eins og ekkert hafi í skorist. Nú á loksins að verja álíka fé í bráðaviðbrögð við því að landið ber ekki lengur þetta gullæði bótalaust. Og er þetta í alvöru gull sem glóir?

   Ferðaþjónustan er ekki hátekjugrein, nema hvað? Sumir fleyta rjómann, aðrir lepja undanrennuna. Þeir eru ekki bara margir, heldur flestir. Svo er enn einn hópurinn sem leikur tveim skjöldum. Er ófeiminn við að gera út á gullæðið en kemur sér hjá að segja skattinum frá því.

   Að svo stöddu væri heppilegra að verja minna fjármagni í landkynningu en meira í að verja og bæta landið sem ferðamennirnir vilja njóta, og að kenna þeim sem starfa í ferðaþjónustunni réttar leikreglur. Þeim sem kunna þær ekki. Eina algilda mælingin á árangur er orðsporið.

 

 

 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband