20.4.2013 | 23:23
FRAMSÓKN Á FLIPPI
Allir sem eru læsir og fylgjast þokkalega með vita að kosningaloforð Framsóknarflokksins um stórfelldar lækkanir húsnæðisskulda er tóm tjara. Það er vísað á uppgjör vegna snjóhengju, sem enginn veit hvenær fellur.
Þetta er svo mikil della að ótrúlegt er að jafnvel framsóknarmenn leggi traust sitt á hana. Þeir sem Framsókn vill að borgi brúsann eru ekki á flótta frá hærri vöxtum en þeir fá annars staðar, þeim liggur ekkert á.
Æ vesalings Framsókn, örfáum gagnast tilfæringarnar sem hún leggur til, ef hreinlega nokkrum þegar á hólminn kemur og dæmið verður gert upp. En það sem er í gangi er sem sagt að Framsókn er á flippi.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.